top of page

”Stefnumót bænda og hönnuða” er frumkvöðlaverkefni í þágu atvinnulífsins þar sem tvær starfstéttir eru leiddar saman til að skapa einstaka afurð.
Rjómabúið Erpsstaðir er fjölskyldufyrirtæki í Dölunum þar sem heiðarleiki og gagnsæi eru undirstöðuþættir í framleiðslunni. Á býlinu búa mjólkurkýrnar við bestu hugsanlegu aðstæður og ráða tíma sínum sjálfar. Undir sama þaki framleiða bændurnir afurðir sínar af kostgæfni með það að markmiði að opna nýjar víddir í upplifun á mjólkurafurðum.
Þetta verkefni er unnið ásamt Kristínu Birnu Bjarnadóttur og Sabrinu Stiegler í samvinnu við bóndann á Erpsstöðum. Skyrkonfektið er búið til úr hágæða Valrhona súkkulaði með mismunandi bragði og fyllingin er hrært skyr með rjóma.



Verkefnið fékk styrk til áframhaldandi þróunar og er loka útkoman sýnd hér að ofan. Varan er í dag framleidd á Rjómabúinu Erpsstöðum og verður seld beint frá býli og er einnig fáanleg í vel völdum verslunum í Reykjavík.

Ég kom ekki mikið að loka útfærslunni þar sem ég var í fæðingarorlofi á þeim tíma sem unnið var að henni.

SKYRKONFEKT

bottom of page