top of page
Krosssaumur er aldagömul hefð í hannyrðum á Íslandi. Hefð var meðal annars fyrir því að hafa útsaumaða dúka á borðum, bæði hversdags og til hátíðarbrigða. Minna ber á slíku í dag og eru þessir vasar því tenging gamla tímans við þá nýju og breyttu mynd sem samfélagið hefur tekið á sig.
Einkennandi fyrir hin íslensku útsaumsmynstur eru hringreitir og marghyrndir reitir sem skipta fletinum upp. Milli reitanna eru oft annars konar mynstur svo sem dýra-, plöntu eða mannamynstur.
Hin forna íslenska hefð er hér notuð á annan hátt en hún einkenndist áður af, fer hér frá tvívíðum dúk yfir í þrívíða vasa.
GUÐRÚN



bottom of page