top of page

Ég heiti Alda Halldórsdóttir.

Stundaði fornám í myndlistarskóla Reykjavíkur frá 2004-2005. Fór í beinu framhaldi í Vöruhönnun við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með BA gráðu árið 2008. Fór eina önn í skiptinám til Gautaborgar árið 2007 þar sem ég tók m.a. námskeið í gullsmíði sem varð kveikjan að því að ég sótti um nám í Gull- og Silfursmíði við Tækniskólann. Hóf nám í Gull- og Silfursmíði árið 2011.

Í Gullsmíðinni tvinnast saman allt það helsta sem heillaði mig úr fyrra námi; fagurfræði, hönnun og handverk.









bottom of page